{Gudni tudar } spacer
spacer
spacer
powered by blogger

{miðvikudagur, maí 10, 2006}

 
Á loka-loka-lokasprettinum

Á þriðjudaginn í síðustu viku skilaði ég inn lokaverkefni mínu til B.Ed.-gráðu í Kennaraháskóla Íslands. Það er sjálfsagt stærsta áfanginn í lífi mínu hingað til. Í fyrradag, mánudag, var svo málfræðiþing hér í Kennó og af því loknu á ég einungis eitt verkefni eftir.
Það er í raun verkefnamappa, sem stendur af fjórum smærri verkefnum og við Valur félagi minn sitjum sveittir og erum að dunda okkur við þetta. Byrjuðum aðeins í gær, en höfum náð fluginu í dag og stefnum á að klára og skila á morgun.

Þar með væri þessu lokið hjá mér, þessum þremur árum í Kennó og ég kominn með kennaragráðuna og líf mitt sem fullorðinn tæki fyrst á flug fyrir alvöru þá.

Við Lovísa ætlum að skella okkur í Borgó um helgina, það er ákveðin hefð fyrir því að við feðgarnir glápum á bikarúrslitin í Englandi sem við verðum að viðhalda. Svo er gleðskapur hjá Kára og frú, sem heldur upp á afmæli sitt. Veit reyndar ekki hvaða dag nákvæmlega og hvað þá aldurinn verður, en það mun væntanlega skýrast. Hef heldur ekkert heyrt um tímasetningu samkvæmisins eða hvað matarkyns verður í boði þarna fyrir okkur. Það skýrist væntanlega líka þegar að dregur.

Lifið sæl

posted by Gudni E. 12:26

Comments:
Get any Desired College Degree, In less then 2 weeks.

Call this number now 24 hours a day 7 days a week (413) 208-3069

Get these Degrees NOW!!!

"BA", "BSc", "MA", "MSc", "MBA", "PHD",

Get everything within 2 weeks.
100% verifiable, this is a real deal

Act now you owe it to your future.

(413) 208-3069 call now 24 hours a day, 7 days a week.
 
Sendu inn athugasemd
spacer