|
föstudagur, maí 26, 2006
Hola Caballeros y Senoras!
Við komum heim frá Lanzarote á þriðjudaginn var, hef aldrei upplifað annan eins lúxus. 5 stjörnu hótel og allt eins gott og það gat orðið. Við vorum færð yfir á það hótel vegna þess að yfirbókað var á hótelið sem við áttum að vera á. Við vorum í raun mjög sátt með það, enda ekki annað hægt. Þeir sem vilja fá ferðasöguna og lýsinguna á hótelinu og því öllu, geta hringt eða eitthvað, ég nenni hreinlega ekki að lýsa þessu, tengillinn á síðasta bloggi lýsir þessu í raun meira en mörg orð.
Ég er búinn að ráða mig í vinnu, gerði það á miðvikudaginn var. Ég fer að kenna í Ölduselskóla og líst vel á það. Tæpur mánuður í útskrift, ótrúlegt hvað þessi 3 ár hafa liðið hratt. posted by Gudni E. 10:58
|
 |