{Gudni tudar } spacer
spacer
spacer
powered by blogger

{þriðjudagur, apríl 18, 2006}

 
Nú styttist óðum í þessu námi hjá manni. Einhvern tíma hef ég bloggað um það að þegar virkir bloggarar eru í tímahraki, eða mikið að gera hjá þeim, þá verður ansi lítið um blogg.
Undanfarin vika og vikur hafa farið í að vinna sem hamhleypa við lokaverkefnið mitt í Kennó. Í morgun þegar ég kom í skólann, fann ég fyrir eilitlu stressi þegar ég settist fyrir framan tölvuna í básnum mínum lesstofunni í Kennó. Ég lentu í svolitlu sem ég hef aldrei fundið áður...Ég tók upp á því að vera skjálfhentur og þetta var bara orðið eins og ég væri með Parkinsons veikina. Reyndi að róa þetta niður með því að taka upp níðþunga bók eftir Jón G. Friðjónsson; ,,Rætur málsins”, hátt í 5 kg, en það breytti engu – það lékk enn allt á reiðiskjálfi. Því næst reyndi að ná þessu úr mér með því að kýla í vegginn, en það breytti engu, nema það að mig sárverkjaði í hendina og viðhaldskostnaður skólans, vegna skemmdar á burðarvegg, stóraukst.

Annars er helvíti margt að frétta – Lovísa er flutt inn og allt gengur vel hjá okkur, lífið verður einhvern veginn svo miklu auðveldara þegar maður hefur fundið sálufélagann. Það leiðir kannski til þess að símtölunum og hittingnum við strákana minnkar, en þau samskipti hljóta að komast á fullt aftur. Veit að sumir voru ekki sáttir með að maður skyldi ekki hafa mætt í partý hjá sumum, en aðstæður voru bara þannig þá að maður hafði ekki dug né þor og þol í það. Það verða sjálfsagt fleiri heimboð trúi ég. Stuttu eftir síðustu bloggfærslu dæmdi ég minn annan úrvalsdeildarleik, Njarðvík-Fjölnir, og hafði ég bara gaman að því, fann að ég var ekki jafn stressaður fyrir það verkefni og fyrir fyrsta leikinn, þannig að nú er bara að halda haus og mæta til leiks af krafti næsta tímabil og vona bara að konur á 4ra tonna amerískum jeppum og skólastelpur sem eru að hlaupa í skólann haldi sig fjarri...

posted by Gudni E. 10:13

spacer