|
föstudagur, febrúar 03, 2006
Komiði sæl veriði!
Stefnir í athyglisverðan dag hjá mér...
Í gær fékk ég hringingu frá rannsóknarlögreglu ríkisins þar sem ég var boðaður í yfirheyrslu hjá Benedikt Lund, rannsóknarlögreglumanni, í morgun. Þeir eru nefnilega að klára málið þar sem stúlkan hljóp í veg fyrir mig í lok nóvember. Skemmtilegt að hefja afmælisdaginn á því að fara í yfirheyrslu hjá lögreglunni.
Yfirheyrslan gekk ágætlega, tók um hálftíma, þar sem Benedikt spurði mig spjörunum úr. Ég reyndi að svara eftir besta minni og komst þokkalega frá þessu. Í lokin var mér tjáð af lögfræðingi RLR að ég hefði ekki réttarstöðu sakbornings (það hefur sem sagt verið á huldu fram til þessa) og væri í dag túlkaður sem vitni.
Annars er nóg að gera þessar vikurnar í skólanum; verkefni á verkefni ofan. Er að fara norður í land með Lovísu Höllu á þorrablót og hitta fólkið hennar.
Heyrumst. posted by Gudni E. 12:31
|
 |