|
mánudagur, febrúar 13, 2006
Gummi frændi (brói)kvartar yfir því við mig að ég bloggi ekki nóg. Það veit ég vel, kæri brói, en svona er þetta að hafa eitthvað annað að gera en að hangsa og drekka bjór ;)
Á morgun er Valentínusdagurinn, 14.febrúar, skelfilegur ósiður sem við höfum tekið upp hér í Ameríkanseringu* okkar. Það skemmtilegasta við þennan dag er að margt kvenfólkið er haldið þeirri ranghugmynd að þetta sé endilega þeirra dagur (annar konudagur) og því eigi karlmenn að gera eitthvað fyrir konur sínar, en ekki e-ð í sameiningu og alls ekki að gera eitthvað fyrir karlmennina. Það hefur mér allavega sýnst... Ég og mín kærasta munum gera eitthvað saman á morgun, fyrir hvort annað
*Ameríkansering = Að taka upp hluti úr menningu Ameríkana og hampa þeim. Einnig nefnt "Kanavæðing" posted by Gudni E. 13:53
|
 |