{Gudni tudar } spacer
spacer
spacer
powered by blogger

{föstudagur, desember 23, 2005}

 
Síðustu dagar hafa verið hreint út sagt svakalegir. Síðasta prófið var 12. desember, byrjaði að vinna á Hrauninu 13. desember og skilaði svo ritgerð 20. desember. Fyndið hvað þessi tími ársins, þessi yndislegi tími er alltaf jafn æðislega stressandi.

Kláraði mín jólagjfainnkaup í gær og verð að segja að ég er sáttur við mitt framlag í ár, frábærar hugmyndir þessi jólin. Ákvað það um miðjan desember að ég mun ekki senda nein jólakort í ár, í fyrsta sinn í e-r 15 ár sjálfsagt. Í staðinn mun ég gefa andvirði jólakortanna (sem ég hefði verslað) og frímerkjanna (sem ég hefði líka verslað) til barnahjálpar Sameinuðu Þjóðanna. Svona til að öðast smá frið í hjartanu.

Seinni næturvakt af tveimur framundan, 15 tíma vakt í þetta skiptið. Fer svo í Borgarnesið á morgun upp úr hádeginu (þá hlýt ég að sleppa við að gera eitthvað!), klyfjaður jólagjöfum frá ættingjum. Já og verð sennilega með eitthvað af óhreinum þvotti mamma :)

Keypti mér annars jakkaföt um daginn, teinótt, svaka flott - fékk skyrtu og silkibindi með í kaupbæti. Glæsilegur.

Gleðileg jól

posted by Gudni E. 13:53

Comments:
I read over your blog, and i found it inquisitive, you may find My Blog interesting. My blog is just about my day to day life, as a park ranger. So please Click Here To Read My Blog
 
Sendu inn athugasemd
spacer