{Gudni tudar } spacer
spacer
spacer
powered by blogger

{mánudagur, nóvember 28, 2005}

 
Ó þetta líf

Ég sem er nýbúinn að tala fjálglega um það hve þetta líf er yndislegt. Hvað haldiði að gerist? Jú, ég lendi í öðru áfalli.

Síðastliðin miðvikudag var ég á leið í skólann, fer Suðurlandsbrautina; svo þegar ég er kominn úr hringtorginu (hjá McDonalds) og er að fara yfir fyrstu ljósin (á grænu) til móts við Subway og Kentucky, þá hleypur ung kona í veg fyrir mig og ég gat í raun ekkert gert nema nauðhemlað. Það var því miður ekki nóg, því að ég lendi á stelpunni, hún skellur með andlitið í rúðunni, fer niður af húddinu og niður á götu og lá þar hreyfingarlaus í e-r 5 sek. Ég trúði ekki mínum eigin augum. Rétt um mánuður frá slysinu í Keflavík og ég rétt að ná mér á strik á ný.
Þetta var svo óraunverulegt að ég trúði þessu ekki. Það voru nokkur vitni að þessu, ég hringdi á sjúkrabíl, svo tók við ferli þar sem ég stóð bara afsíðis, var svo tekinn í yfirheyrslu af lögreglunni á meðan stúlkunni var ekið á sjúkrahúsið. Um 10 leytið var ég kominn niðrí skóla (alveg eðlilegt að rjúka beint í verkefnavinnu er það ekki??). Ég ráfaði um skólann í 15-20 mínutur, vissi ekkert hvað ég var að gera, var náfölur og svaraði fólki bara út í hött. Svo ákvað ég að hringja í pabba og þegar ég sagði honum frá þessu þá brotnaði ég niður. Gat ekki meir. Þau mamma drifu sig suður og á meðan beið ég í skólanum með Hössa og Val vinum mínum.
Verst var að vita ekkert hvað yrði um stúlkuna, hversu alvarlega hún væri slösuð. Fór í áfallahjálp strax í hádeginu og þar fékk ég fréttirnar að stelpan væri ekki alvarlega slösuð og við það létti mér að sjálfsögðu stórum. Ég fór svo með foreldrunum í Borgarnes (gerði þau mistök eftir áreksturinn í Kef að vera of mikið einn) og kom bara suður í dag. Átti reyndar erfitt með svefn, en eftir að hafa farið í slökun og nk. dáleiðslu á föstudag náði ég loksins smá svefni - svaf þá um nóttina 13 tíma samfleytt.

Annars er ég góður, próf, verkefni og ritgerðir að skella á og því ekki seinna vænna en að koma sér í gírinn fyrir lokasprettinn. Vona að þessum hrakfallapistlum mínum fari að fækka héðan í frá.

Lifið heil.

posted by Gudni E. 23:21

spacer